Til baka
Kærleikskúlan

Kærleikskúlan 2006

Verð
10.900 kr.
Utan sölutímabils

Salt jarðar eftir Gabríellu Friðriksdóttur er Kærleikskúla ársins 2006.

Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Gló í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.

eftir Gabríellu Friðriksdóttur

Salt jarðar

Óteljandi agnir mynda landslag sem breiðir úr sér og þekur jörðina ...
Þar vaxa áferðarmiklir og kynlegir kvistir
Landslag sem mótar og nærir hin margvíslegu lífsform og andann sem innan og utan þess býr 

Það er lífsvilji sálarinnar og vonin sem mynda samfélög heimsins

Að viðurkenna, varðveita og virða hið skapandi afl margbreytileikans er krydd lífsins - SALT JARÐAR“

- Gabríela