Kærleikskúlan
Kærleikskúlan 2007
Verð
8.900 kr.
Utan sölutímabils
HRINGUR eftir Eggert Pétursson er Kærleikskúla ársins 2007.
Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Gló í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.
eftir Eggert Pétursson
HRINGUR
Eftir vetur kemur vor, síðan sumar, haust og aftur vetur. Af gróðrinum lesum við framrás tímans. Sortulyngið ber blóm að vori. Blómið verður að beri sem þroskast yfir sumartímann og um haustið er berið orðið skærrautt. Lyngið dvelur undir snjónum og birtist aftur vo...rgrænt og blómgast á ný. Fræin skjóta rótum.
Lífskeðjan er óslitinn hringur.
- Eggert Pétursson