Kærleikskúlan
Kærleikskúlan 2009
Verð
8.900 kr.
Utan sölutímabils
SNERTING eftir Hrein Friðfinnsson er Kærleikskúla ársins 2009.
Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Gló í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.
eftir Hrein Friðfinnsson
SNERTING
Við erum í sífellu að snerta hluti sem á vegi okkar verða. Manneskjan skilur eftir sig slóð af fingraförum í gegnum lífið. Við snertum fólk og það okkur. Snerting er notuð í lækninga- og líknarskyni. Við tökum upp hluti, réttum þá öðrum, búum til hluti, breytum hlutum. Immanuel Kant sagði að hendurnar væru hinn ytri heili mannsins.
- Hreinn Friðfinnsson