Til baka
Kærleikskúlan

Kærleikskúlan 2014

Verð
10.900 kr.
Utan sölutímabils

Mandarína eftir Davíð Örn Halldórsson er Kærleikskúla ársins 2014.

Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Gló í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.

Mandarína

Appelsínugul kringla...
sem brotnar í báta.
Börkur sem ilmar,
appelsínugulur eða grænn.
Innihaldið ríkt,
minningin um síðustu sterk.

Þessi mandarína bragðast ekki vel,
en hún brotnar í báta.

Davíð Örn Halldórsson

Maður með Kærleikskúlu
Davíð Örn Halldórsson er fæddur árið 1976. Hann útskrifaðist frá myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2002 og býr og starfar í Reykjavík. Verk Davíðs Arnar eru gjarnan unnin á óhefðbundin efni og einkennast af kraftmikilli litanotkun og spennandi samruna forma og mynstra. Verkin hafa sterka skírskotun til graffitiverka en falla á einstakan hátt að myndlistarhefðinni um leið og þau vísa sterkt í götulistina. Davíð Örn, sem er í fremstu röð íslenskra listmálara, hefur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis. Á meðal viðurkenninga sem hann hefur hlotið er Carnegie-styrkurinn árið 2013.