Til baka
Kærleikskúlan

Kærleikskúlan 2018

Verð
10.900 kr.
Utan sölutímabils

Terrella eftir Elínu Hansdóttur er Kærleikskúla ársins 2018.  

Allur ágóði af sölunni rennur óskiptur til sumarbúða Gló í Reykjadal. Kærleikskúlan er framleidd í takmörkuðu upplagi og kemur í fallegri gjafaöskju.

eftir Elínu Hansdóttur

Terrella

Innan glerhjúpsins er kúla sem dregur að sér efni og skapar heild sem einungis varir eitt andartak. Um leið og utanaðkomandi kraftur hreyfir við henni verður samsetningin á yfirborði hennar önnur. Fegurðin býr í tilviljanakenndri lögun, þeim margbreytileika sem að aðdráttaraflið býður uppá og þeim áhrifum sem við getum haft á umhverfi okkar – því kærleikurinn getur með krafti sínum sameinað og umbreytt því sem kemst í tæri við segulmagn hans.

Elín Hansdóttir er fædd árið 1980 en hún lauk BA-prófi frá Listaháskóla Íslands og MA-prófi frá KHB–Weissensee í Berlín. Innsetningar Elínar, sem byggðar eru fyrir tiltekin rými, taka á sig margvíslegar myndir. Nefna má hljóð- og sjónrænar blekkingar, göng í ætt við völundarhús og byggingarfræðilega þætti sem myndast fyrir tilstilli hreyfingar. Verk hennar ögra og hvetja áhorfendur til að upplifa og skynja umhverfi og rými á nýjan hátt, en þau fjalla í grundvallaratriðum um tilvist mannsins og fegurðina í óvissunni. Elín, sem fengist hefur við flesta miðla í listsköpun sinni, hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2017 og Guðmunduverðlaunin seinna sama ár. Verk Elínar hafa verið sýnd á öllum helstu sýningarstöðum hérlendis og víða erlendis.